Mikil eftirvænting ríkir fyrir heimsfrumsýningu íslensku sjónvarpsþáttaraðarinnar Reykjavík Fusion á Cannes Series-hátíðinni í lok apríl. Ítarlegt viðtal við Hörð Rúnarsson, annan höfund þáttanna, og Ólaf Darra Ólafsson aðalleikara þeirra birtist á vefmiðli tímaritsins Varietyí gær.
Í viðtalinu segja þeir meðal annars frá tilurð þáttaraðarinnar sem fjallar um matreiðslumeistara sem kemur úr fangelsi og neyðist til að slá lán hjá undirheimakóngi til að stofna flottasta veitingastað Reykjavíkur.
Í viðtalinu segir Hörður frá því að hann sjálfur hafi mikinn áhuga á matreiðslu en hugmyndin hafi kviknað í samtali sem hann átti við kokk sem starfar í Reykjavík. Þá bætir Ólafur Darri við að þættirnir eigi sér meiri stoð í veruleikanum en fólk myndi ætla. Farið er um víðan völl í viðtalinu en í því ræðir Ólafur Darri til að mynda hlutverk sitt í þáttaröðinni Severance og Hörður framtíð framleiðslufyrirtækisins ACT4.