Í það minnsta 15 fórust í eldsvoða á hóteli í indversku borginni Kolkata að sögn lögregluyfirvalda á staðnum.
Nokkrum var bjargað úr herbergjum og af þaki hótelsins og þá náðu nokkrir að klöngrast út um glugga og upp á þak áður en þeim var bjargað.
Manoj Verma, lögreglustjóri í Kolkata, segir við AFP-fréttaveituna að tala látinna sé komin í 15 og þar af eru tvö börn. Um tugur manna hlaut brunasár og var fluttur á nærliggjandi sjúkrahús.
Rannsókn er hafin á upptökum eldsins á hótelinu en Verma segir að hótelið hafi breyst í hálfgerðan gasklefa og svo virðist að margir hafa kafnað.
88 hótelgestir voru á Rituraj-hótelinu þegar eldurinn kom upp en það er staðsett í viðskiptahverfi í miðbæ Kolkata.
#WestBengal: 14 people were killed in a hotel fire near Falpatti Machhua in central Kolkata. pic.twitter.com/HztAwyuln8
— All India Radio News (@airnewsalerts) April 30, 2025