16 ára piltur hefur verið handtekinn grunaður um þrjú morð í Uppsölum í Svíþjóð í gær. Hinir látnu eru ungir menn á aldrinum 15-20 ára.
Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar í Uppsölum í morgun. Skotárásin átti sér stað við hárgreiðslustofu í borginni.
„Við vorum fljót á staðinn og inni á hárgreiðslustofunni fundust þrír látnir,“ sagði Erik Åkerlund, yfirmaður lögreglunnar í Uppsölum, á blaðamannafundinum.
Samkvæmt upplýsingum Expressen voru allir þrír skotnir í höfuðið og látnir þegar lögreglan fann þá.
Samkvæmt upplýsingum sænska ríkistútvarpsins, SVT, kom einn hinna látnu fram í fyrri rannsókn á verknaði sem beindist gegn ættingja klíkuforingjans Ismail Abdo. Ekki er vitað hvort hægt sé að tengja það á einhvern hátt við skotárásina í gær.
„Við getum ekki sagt að það séu skýr tengsl við nein átök glæpagengja núna, en það er eitt af því sem við erum að skoða sérstaklega,“ sagði lögreglustjórinn Erik Åkerlund á blaðamannafundi.