Bandaríski gamanmyndaleikstjórinn og handritshöfundurinn Alexander Payne hefur verið skipaður formaður dómnefndar alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum sem fram fer í lok sumars.
Kvikmyndir Paynes, sem eru átta talsins, hafa verið tilnefndar til 24 óskarsverðlauna en síðasta kvikmynd hans The Holdovers hlaut meðal annars tilnefningu sem besta myndin í fullri lengd.
Payne er ekki ókunnur feneysku kvikmyndahátíðinni sem þykir ein sú virtasta í heimi en árið 2017 var gamanmynd hans Downsizingopnunarmynd hátíðarinnar. Alberto Barbera, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, dásamaði Payne í tilkynningu um skipanina og talaði þar um að ástríða hans fyrir kvikmyndaiðnaðinum væri drifin áfram af þekkingu á fortíð greinarinnar sem og metnaði fyrir framtíð hennar.