Embla Líf Hreinsdóttir, dýralæknanemi í Valensía á Spáni, var á hlaupabrettinu heima á stúdentagörðunum þegar rafmagnið sló skyndilega út á þriðjudag og brettið stöðvaðist snögglega undir fótum hennar.
„Ég var sem betur fer að halda mér í þegar það stoppaði. Annars hefði ég örugglega bara flogið á hausinn,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Fyrst kippti hún sér reyndar lítið upp við rafmagnsleysið, þar sem varaflsstöð fór í gang á stúdentagörðunum og ljósin kviknuðu aftur. Hún lét því sem ekkert hefði í skorist.
Í raun komst Embla ekki að því hve víðtækt rafmagnsleysið var fyrr en um þremur korterum síðar, þegar áhyggjufull móðir hennar hringdi til að athuga hvort allt væri í lagi.
Þá loks kveikti hún á fréttunum og komst að því að slokknað hafði á gervöllu landinu.
Embla var heppin, að eigin sögn, þar sem varaflsstöðin dugaði í örfáa tíma og netið í byggingunni virkaði því einnig. En á endanum slokknaði allt þar líka.
Þegar hún reyndi að ná sambandi við vini sína reyndist það erfitt, enda flestir straum- og sambandslausir. „Maður náði ekki sambandi við neinn,“ segir hún.
„Það var í raun óvissan sem var óþægilegust. Maður vissi í raun ekkert hvenær rafmagnið myndi koma aftur,“ bætir Embla við.
Hún býr í miðborg Valensía og stundar nám við CEU, en í borginni allri býr um ein og hálf milljón manna. Hún ákvað að kíkja aðeins út.
„Það var fyndið að sjá mismunandi viðbrögð hjá fólki. Sumir voru að reyna að komast inn í búðir að reyna að kaupa vatn,“ segir hún. „Svo voru aðrir, sem sátu bara úti í sólbaði að tjilla.“
Það var mikið umferðaröngþveiti enda voru öll umferðarljós óvirk, en umferðin í borginni er þegar afar mikil. Hún ákvað svo að halda sig heima.
Embla segir gærdaginn aftur á móti hafa verið tiltölulega venjulegan. Hún hafi komist með lestinni í skólann, sem hafi tekið furðulega stuttan tíma að koma aftur í gang eftir rafmagnsleysið. Sumir samnemendur hennar sem voru á leiðinni heim úr páskafríi hafi þó verið strand í öðrum landshlutum þar sem flugferðum þeirra var frestað.
Óljóst er hvað olli rafmagnsleysinu en forsvarsmenn spænska raforkukerfisins útiloka netárás.
Spænsk yfirvöld reyna enn að komast til botns í málinu. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, hefur biðlað til almennings að forðast að dreifa röngum og villandi upplýsingum um málið.
Eduardo Prieto, sem er framkvæmdastjóri Red Electrica sem sér um flutningskerfi rafmagns í landinu, segir að samkvæmt þeirra greiningu þá sé hægt að útiloka netárás.