Missti stjórn á bílnum og ók á hóp vegfarenda í Kaupmannahöfn

Minnst fimm eru slasaðir.
Minnst fimm eru slasaðir. AFP

Mikill viðbúnaður er við Brú Lovísu drottningar í Kaupmannahöfn eftir að eldri ökumaður missti stjórn á bíl og ók á hóp vegfarenda.

Lögreglan greinir frá því að fimm séu slasaðir og að mikill viðbúnaður sé á vettvangi. 

Nánari upplýsingar um líðan þeirra liggur ekki fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert