Síma- og nettengingar féllu út hjá þúsundum Grænlendinga frá mánudagskvöldi til aðfaranætur þriðjudags vegna umfangsmikils rafmagnsleysis sem varð á Íberíuskaganum á mánudag.
Grænlenska fjarskiptafyrirtækið Tusass greindi frá því á mánudag að samband hefði rofnað við búnað þess í spænska bænum Maspalomas.
Að sögn rekstrarstjóra Tusass, Jonas Hasselriis, er fyrirtækið háð alþjóðlegum netkerfum og geta rafmagnstruflanir, líkt og sú sem varð á Spáni, í undantekningartilvikum haft áhrif á samskipti á Grænlandi.
Truflunin varð til þess að þúsundir Grænlendinga misstu farsíma- og nettengingar í nyrstu og syðstu hlutum landsins.
„Við munum draga lærdóm af þessu rafmagnsleysi í okkar framtíðarstarfi,“ segir Hasselriis.