Vance: Búið að endurreisa Berlínarmúrinn

JD Vance er harðorður í garð þýska „valdakerfsins.“
JD Vance er harðorður í garð þýska „valdakerfsins.“ AFP/Kevin Lamarque

Varaforseti og utanríkisráðherra Bandaríkjanna gagnrýna harðlega þá ákvörðun leyniþjón­ustu Þýskalands að skil­greina þýska þjóðernisflokkinn AfD sem öfga­hægri­hreyf­ingu.

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, skrifaði í færslu á X að AfD væri næstvinsælasti flokkur landsins og sá vinsælasti í austurhluta Þýskalands. 

„Vesturríkin rifu Berlínarmúrinn saman. Hann hefur nú verið endurreistur – ekki af Sovétmönnum eða Rússum, heldur af þýska valdakerfinu,“ skrifaði JD Vance.

Rubio: „Þetta er dulbúin harðstjórn“

Með því að skil­grein­a flokkinn sem öfgahægrihreyfingu fá Þýsk yf­ir­völd nú aukn­ar heim­ild­ir til þess að fylgj­ast með starf­semi hans, t.a.m. með síma­hler­un­um og notk­un upp­ljóstr­ara.

Í til­kynn­ingu frá þýsku leyniþjón­ust­unni seg­ir að AfD van­v­irði ákveðna þjóðfé­lags­hópa í Þýskalandi og brjóti gegn mann­legri reisn þeirra. Þá var sagt að viðhorf flokksins gagnvart innflytjendum og mótmælendum væri fjand­sam­legt.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á X að Þýskaland ætti að snúa við blaðinu.

„Þetta er ekki lýðræði – þetta er dulbúin harðstjórn. Það sem er í raun öfgakennt er ekki hinn vinsæli AfD flokkur – sem lenti í öðru sæti í nýlegum kosningum – heldur banvæn stefna stjórnvalda um opin landamæri sem AfD er andvígur. Þýskaland ætti að breyta um kúrs.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert