Barni tókst að valda skemmdum á málverkinu „Grey, Orange on Maroon, Nr. 8“ eftir Mark Rothko á safni í Rotterdam í Hollandi nú á dögunum en verkið er metið á um 42,5 milljónir punda eða 7,5 milljarða íslenskra króna, samkvæmt dagblaðinu AD.
BBC greinir frá og segir talsmann safnsins, Boijmans Van Beuningen, hafa sagt að verið væri að skoða næstu skref og hvernig mætti lagfæra verkið. Tjónið varð á yfirborði málverksins, sem er ólakkað, en litlar rispur sjást á neðri hluta þess.
„Verið er að leita til sérfræðinga í Hollandi og erlendis. Við erum að kanna hvað við gerum næst,“ sagði talsmaðurinn og bætti því við að gert væri ráð fyrir að hægt yrði að sýna málverkið aftur í framtíðinni.
Þá var haft eftir Sophie McAloone, yfirmanni forvörsludeildar hjá Fine Art Restoration Company, að nútímaleg ólökkuð málverk eins og „Grey, Orange on Maroon, Nr. 8“ væru sérstaklega viðkvæm fyrir svona skemmdum.