Trump vill vígjast til páfadóms

Svona sér gervigreindarvölvan alvitra Donald Trump fyrir sér sem páfa …
Svona sér gervigreindarvölvan alvitra Donald Trump fyrir sér sem páfa og lætur sér í léttu rúmi liggja þótt forsetinn teljist ekki kjörgengur til páfadóms. Til þess þyrfti hann að vera einn 252 starfandi kardínála innan kardínálaráðs Vatíkansins. Trump uppfyllir hins vegar hitt skilyrðið um að hafa ekki náð 80 ára aldri við fráfall síðasta páfa. Ljósmynd/Truth Platform

Gamansemi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á kostnað páfadómsins ríður ekki við einteyming og segja bandarískir og annarra þjóða fjölmiðlar nú frá því er forsetinn birti af sér gervigreindarsniðna mynd í embættisklæðum páfa á samfélagsmiðli sínum Truth Social í gær.

Fylgir myndbirtingin í kjölfar þeirrar yfirlýsingar Trumps í vikunni að hann gæti vel hugsað sér að gegna hinu æðsta embætti kaþólska kirkjuveldisins, en það tjáði hann fréttamönnum með þeim orðum að hann vildi verða næsti páfi, þegar þeir inntu hann eftir því hvern hann gæti helst hugsað sér  sem eftirmann Frans páfa sem í apríl lést í hárri elli eftir alvarlegan krankleika.

Myndin sem Trump birti í gær ber hefðbundin merki þess að vera runnin undan rifjum gervigreindartækni og sýnir forsetann benda fingri til himins í páfakufli með mítur á höfði, sem hattur páfa kallast, og gullinn kross um hálsinn.

Frans gagnrýndi vegg Trumps

Í framhaldi svars síns við spurningu fjölmiðlamanna dró forsetinn þó í land með eigin páfadóm, en sagði að í New York væri starfandi kardínáli sem honum þætti „mjög góður“ og virtist þar eiga við hinn íhaldssama Timothy Dolan erkibiskup sem skorið hefur upp herör gegn fóstureyðingum í þeirri umræðu sem verið hefur um þær síðustu misseri.

Ekki er langt síðan Trump var við útför páfa sem varð tilefni fyrstu utanlandsferðar hans frá embættistökunni í janúar. Um þessar mundir játar um fimmtungur Bandaríkjamanna kaþólska trú og benti kosningatölfræði í kjölfar forsetakosninganna í nóvember til þess að Trump hefði hlotið atkvæði um það bil 60 prósenta þess hóps.

Hafði Frans páfi heitinn þó uppi gagnrýni í garð Trumps, svo sem í fyrra framboði hans árið 2016 þegar áberandi kosningamál forsetaframbjóðandans snerist um að reisa varnarmúr mikinn á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó til að tálma ólöglegum innflytjendum för sína norður yfir landamærin og inn í Bandaríkin.

„Sá sem eingöngu vill reisa veggi í stað þess að byggja brýr, sama hver hann er, getur ekki talist kristinn,“ sagði Frans um Trump og vegg hans, en senn líður að því að kardínálar Páfagarðs kjósi næsta páfa úr eigin röðum, koma þeir saman í Sistínsku kapellunni á miðvikudaginn, 7. maí, til að ráða ráðum sínum.

600 ára hefð kjörgengis

Teljast 252 kardínálar nú kjörgengir þótt tveir þeirra muni ekki gefa kost á sér vegna heilsufars síns, en ekki uppfylla þó allir starfandi kardínálar hæfisskilyrði til páfakjörs þar sem eitt kjörgengisskilyrða er að kardínáli hafi ekki náð fullum 80 ára aldri á dánardægri síðasta páfa.

Um 600 ára skeið hefur sá hátturinn verið á að kardínálar kaþólsku kirkjunnar velj eftirmann páfa úr sínum röðum og því ólíklegt að breyting verði á fyrir þingið á miðvikudag. Kosningaumferðirnar á samkomunni eru nokkrar og kjósa kardínálar með því að rita nafn æskilegs páfa á blað.

Eru kjörseðlar þessir brenndir eftir því sem umferðunum lýkur og fækkar í hópi kjörgengra kandídata til páfadóms. Til að gefa almenningi, sem jafnan fyllir Péturstorgið meðan á kjörfundi stendur, hugmynd um framvindu mála brenna kardínálarnir til þess gerðan efnivið í eldstó kapellunnar og stígur svartur reykur upp af skorsteini hennar til merkis um að fundurinn hafi ekki komist að niðurstöðu, en sé reykurinn hvítur er hann tákn um að nýr páfi hafi verið kjörinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert