Viðhorf Trumps breyst eftir fundinn í Péturskirkjunni

Trump og Selenskí funduðu í Péturskirkjunni áður en útför Frans …
Trump og Selenskí funduðu í Péturskirkjunni áður en útför Frans páfa hófst fyrir viku síðan. AFP

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði viðhorf Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hafa breyst eftir fund þeirra í Vatikanínu fyrir viku.

Trump og Selenskí funduðu í Péturskirkjunni áður en útför Frans páfa hófst. Um var að ræða fyrsta fund leiðtoganna síðan þeir áttu hitafund í Hvíta húsinu í lok febrúar. 

„Ég er sannfærður um að eftir fund okkar í Vatíkaninu hafi Trump forseti byrjað að líta á hlutina öðruvísi. Við sjáum til. Það er hans framtíðarsýn, hans val í öllum tilvikum,“ sagði Selenskí við lítinn hóp blaðamanna. 

Frá hitafundi leiðtoganna í Hvíta húsinu í febrúar.
Frá hitafundi leiðtoganna í Hvíta húsinu í febrúar. AFP

Á miðvikudag var greint frá því að Banda­rík­in og Úkraína hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um nýt­ingu auðlinda Úkraínu til end­ur­reisn­ar lands­ins. 

Selenskí sagði að samkomulagið gæfi báðum þjóðum jafn­an ávinn­ing, þrátt fyr­ir að ekki væri kveðið á um nein­ar sér­stak­ar trygg­ing­ar á ör­yggi Úkraínu í sam­komu­lag­inu.

Gefur lítið fyrir vopnahléið

Í sama viðtali sagðist Selenskí gefa lítið fyrir þriggja daga vopnahlé sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur tilkynnt í næstu viku á meðan Rússar minnast stríðsloka seinni heimstyrjaldarinnar. 

Hann sagði þó að Úkraínumenn væru tilbúnir að samþykkja algjört vopnahlé. 

Úkraína mun ekki „leika leiki til þess að útbúa ánægjulegt andrúmsloft til þess að gera Pútín kleift að losna úr einangrun 9. maí“ er búist er við nokkrum alþjóðlegum leiðtogum í Moskvu. 

„Okkar afstaða er einföld varðandi ríki sem hafa eða ætla að ferðast til Rússlands 9. maí, við getum ekki tekið ábyrgð á því sem gerist á landsvæði Rússa. Þeir eiga að tryggja öryggi ykkar.“

9. maí ár hvert er haldin umfangsmikil skrúðganga í Moskvu þar sem minnst er sig­urs Rúss­lands á Þýskalandi nas­ism­ans í heims­styrj­öld­inni síðari. Hátíðar­höld­in þann dag eru einn mik­il­væg­asti al­menni frí­dag­ur Rússa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert