Faðir 18 ára ungmennis sem nýlega var skotinn af lögreglumönnum í Cincinnati-borg í Ohio hefur verið ákærður fyrir að drepa lögreglumann í borginni í kjölfarið.
Er manninum gert að hafa ekið vísvitandi á lögreglumanninn þegar hann var við skyldustörf.
Maðurinn sem hefur verið ákærður er 38 ára og að sögn lögfræðinga hans átti atvikið sér stað nokkrum klukkustundum eftir að hann hafði horft á myndbandsupptöku úr líkamsmyndavél lögreglu sem sýndi skotárásina á son hans, Ryan Hinton.
Er Hinton sagður hafa beint skotvopni í átt að lögreglu áður en hann var skotinn. Byssa fannst á vettvangi en ekkert bendir til þess að af henni hafi verið hleypt.
Lögregluþjónninn, sem ekki hefur verið nafngreindur opinberlega, var við umferðareftirlit við útskriftarathöfn Háskólans í Cincinnati þegar hann var keyrður niður um kl. 13 að staðartíma á föstudag. Lögreglumaðurinn hafði engin tengsl við atvikið þar sem sonur hans lést.
Um klukkan 10 sama morgun sátu fjölskyldumeðlimir Hinton hjá lögmanni sínum til að horfa á upptöku lögreglu af banaskoti hans.
Lögmaðurinn, Michael Wright, sagði að Hinton hefði verið í uppnámi eftir að hafa horft á myndbandið. Ekkert spurðist til föðurins eftir fundinn fyrr en fregnir bárust af honum á banastað lögreglumannsins.
Mike DeWine, ríkisstjóri Ohio, fordæmdi árásina og sagði hug sinn hjá fjölskyldu lögreglumannsins.