Hin 20 ára gamla Audrey Backeberg hvarf frá Reedsburg í Wisconsin í júlí árið 1962. Hún er nú fundin og segist ekki sjá eftir neinu, eftir að hafa verið týnd í tæplega 63 ár.
Eftir hvarf Backeberg ræddi lögreglan við barnfóstru fjölskyldunnar sem sagðist hafa farið, ásamt Backeberg, á puttanum til Madison þann 7. júlí og þaðan tekið strætó til Indianapolis. Hún sagðist ekki hafa séð Backeberg síðan hún gekk frá strætóstöðinni og fyrir horn.
Síðastliðinn fimmtudag, tæplega 63 árum síðar, gaf lögreglan í Sauk County út tilkynningu þess efnis að Backeberg hafi fundist heil á húfi.
Nú er ljóst að Backeberg hvarf á eigin forsendum og hefur síðastliðin 63 ár búið í öðru ríki í Bandaríkjunum.
Rannsóknarlögreglumanninum Isaac Hanson í Sauk County var úthlutað málinu í byrjun þessa árs sem hluti af yfirstandandi endurskoðun á óleystum sakamálum, sagði lögreglustjórinn Chip Meister. Hann yfirheyrði vitni upp á nýtt, endurmat öll sönnunargögn og komst að nýjum upplýsingum.
En leyndarmálið að því að leysa málið var ættfræðiprófíll systur hennar á ancestry.com.
„Það reyndist lykilatriði í að finna dánarvottorð, manntalsskýrslur og alls konar gögn,“ sagði Hanson við WISN.
„Að lokum fundum við heimilisfang.“
Hanson bað lögreglumenn að líta við á heimilisfanginu sem hann fann og tíu mínútum síðar hringdi Backeberg, sem nú er á níræðisaldri, í hann.
Hanson segir Backeberg hafa flúið vegna ofbeldis sem hún þurfti að þola af höndum þáverandi eiginmanns síns, en hann hafi lofað henni að það sem eftir var af samtali þeirra yrði trúnaðarmál. Því vildi hann ekki heldur greina frá því í hvaða ríki hún hefur búið síðustu áratugi.
Backeberg á tvö börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, Ronald, sem lést árið 2006. Hanson segir hana hafa gift sig aftur og hún beri núna nýtt eftirnafn – sem hann neitaði að gefa upp.
Fjölskyldumeðlimum Backeberg hefur verið tilkynnt um málið. Hanson sagði þá hafa haft blendnar tilfinningar en verið „himinlifandi“.
„Hún hljómaði ánægð,“ sagði hann.
„Örugg með ákvörðun sína. Engin eftirsjá.“