Nýr páfi er frá Bandaríkjunum

Robert Francis Prevost kardí­náli er arftaki Frans páfa og hefur …
Robert Francis Prevost kardí­náli er arftaki Frans páfa og hefur tekið sér nafnið Leó XIV. AFP/Alberto Pizzoli

Robert Francis Prevost kardí­náli var í dag kjörinn páfi kaþólsku kirkj­unn­ar. Hann hefur tekið sér nafnið Leó XIV. Hann er 69 ára gam­all og er frá Bandaríkjunum.

Hvít­ur reyk­ur kom úr strompi Sixt­ín­sku kap­ell­unnar í Vatíkan­inu um kl. 16.08 í dag. Um 40.000 manns á Péturstorgi fögnuðu tíðind­un­um inni­lega.

Um klukku­tíma eft­ir að reykjar­merki bár­ust frá kap­ell­unni steig franski kardínálinn Dominique Mamberti fram á sval­ir Pét­urs­kirkj­unn­ar og sagði „Habem­us Papam“ (Við höf­um eign­ast páfa) og nefndi síðan nafn nýs páfa.

Páfi er leiðtogi kaþólsku kirkjunnar og er nýr páfi sá 267. í röðinni.

Leó XIV er fyrsti bandaríski páfinn.
Leó XIV er fyrsti bandaríski páfinn. AFP/Andrej Isakovic

Leó páfi leggur áherslu á frið

Nýkjörinn páfi hóf sína fyrstu ræðu á orðunum:

„Kæru bræður og systur, þetta er fyrsta kveðja hins upprisna Krists. Ég vil senda ykkur friðarkveðju, til fjölskyldna ykkar, til ykkar allra, hvar sem þið eruð stödd. Megi friður vera með ykkur.“

„Guð elskar okkur öll skilyrðislaust,“ hélt Leó páfi áfram.

Heiðraði hann forvera sinn, Frans páfa, þegar hann sagðist vilja veita fólkinu sína eigin blessun eins og Frans páfi gerði í sinni síðustu opinberu ræðu á Péturstorginu.

„Mannkynið þarfnast Krists sem brúar til Guðs og svo að ást hans nái til okkar. Hjálpum okkur og hjálpum hvert öðru, að byggja brýr.“

Þakkaði kardínálaráðinu

Þá þakkaði hann kardínálaráðinu fyrir kjörið og sagði:

„Við getum öll gengið saman að því heimalandi sem Guð hefur útbúið fyrir okkur. Sérstök kveðja til kirkjunnar í Róm.“

Leó páfi hélt ræðu sinni áfram og bað fólkið að biðja til Maríu meyjar í sameiningu, í von um blessun hennar.

Leiddi hann fólkið þá í stuttri bæn sem uppskar mikil fagnaðarlæti.

Merki um einingu kirkjunnar

Nýr páfi var kjörinn enn hraðar en forveri hans, Frans páfi.

Hvíti reykurinn birtist úr strompi kapellunnar eftir aðeins einn dag af viðræðum kardínálaráðsins.

Þetta segir ítalski kardínálinn Giuseppe Versaldi að sé merki um einingu kirkjunnar.

AFP/Tiziana Fabi
Nunna biður bænir þar sem hún bíður eftir nýjum páfa.
Nunna biður bænir þar sem hún bíður eftir nýjum páfa. AFP/Jeff Pachoud
Gríðarlegur fjöldi fólks bíður eftir að sjá nýjan páfa í …
Gríðarlegur fjöldi fólks bíður eftir að sjá nýjan páfa í fyrsta sinn. AFP/Filippo Monteforte
Hvít­ur reyk­ur úr strompi Sixtínsku kap­ell­un­ar merkir að kardí­nál­arn­ir hafi …
Hvít­ur reyk­ur úr strompi Sixtínsku kap­ell­un­ar merkir að kardí­nál­arn­ir hafi komið sér sam­an um það hver verður arftaki Frans páfa. AFP/Tiziana Fabi
Prelátar fagna á Péturstorgi.
Prelátar fagna á Péturstorgi. AFP/Gabriel Bouys
Nunna bregst við hvíta reyknum úr strompi Sixtínsku kap­ell­un­ar.
Nunna bregst við hvíta reyknum úr strompi Sixtínsku kap­ell­un­ar. AFP/Jeff Pachoud
Mikil fagnaðarlæti brutust út á Péturstorgi þegar hvítur reykur tók …
Mikil fagnaðarlæti brutust út á Péturstorgi þegar hvítur reykur tók að berast frá strompi Sixtínsku kap­ell­un­ar. AFP/Gabriel Bouys
Mannmergð fyrir utan Sixtínsku kapelluna.
Mannmergð fyrir utan Sixtínsku kapelluna. AFP/Andrea Bernandi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert