Sprengingar á flugvelli í Kasmír-héraði

Átökin á milli Pakistans og Indlands hafa stigmagnast. Frá Kasmír-héraði. …
Átökin á milli Pakistans og Indlands hafa stigmagnast. Frá Kasmír-héraði. Mynd úr safni. AFP

Háværar sprengingar heyrðust koma frá flugvelli við Jammu-borg í Kasmír-héraði. Völlurinn tilheyrir því svæði sem Indverjar ráða yfir í héraðinu.

Fyrrverandi lögreglustjóri í Jammu-borg og Kasmír-héraði, Shesh Paul Vaid, ritaði „háværar sprengingar“ á samfélagsmiðla.

Heimildarmaður AFP-fréttaveitunnar sagðist ekki geta staðfest hvað hefði orsakað sprenginguna. Þá gat hann ekki staðfest að þær tengdust stigmögnun átaka milli Pakistans og Indlands.

Hvetja ríkin til að draga úr spennu

Fjöldi þjóða hefur lýst áhyggjum vegna þeirra stöðu sem upp er komin í átökunum milli Indlands og Pakistans.

Evrópusambandið hefur hvatt ríkin til að grípa til tafarlausra aðgerða til að draga úr spennu þeirra á milli.

Tyrknesk yfirvöld hafa varað við mögulegu allsherjarstríði á milli þjóðanna eftir að Indland gerði flugskeytaárásir á Pakistan á þriðjudag. Pakistanar svöruðu með árásum á indverska hluta Kasmír-héraðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert