Trump boðar stór tíðindi í dag

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað til fréttamannafundar í Hvíta húsinu dag þar sem hann mun tilkynna um stóran viðskiptasamning. Frá þessu greinir Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social.

„Stór fréttamannafundur á morgun. Stór viðskiptasamningur við fulltrúa öflugs og virts lands. Hinn fyrsti af mörgum,“ skrifar Trump.

Bandarískir fjölmiðlar segja að Trump muni tilkynna um viðskiptasamning við Bretland og að löndin hafi náð samkomulagi um lækkun tolla.

Trump lagði víðtæka tolla á bandarísk viðskiptalönd í síðasta mánuði en frysti flesta þeirra tímabundið til að mögulegt væri að gera viðskiptasamninga.

The Times segir að ekki sé ljóst hvort búið sé að ganga frá viðskiptasamningi Bandaríkjanna við Bretland eða hvort ríkin tvö muni tilkynna ramma um samning sem yrði háður frekari samningsviðræðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert