Vill að Indland og Pakistan ræði saman

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AFP

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti stjórnvöld í Indlandi og Pakistan að grípa til tafarlausra aðgerða til að draga úr stigmögnun átaka þeirra á milli, og leita leiða til að ræða saman.

Tugir hafa fallið í átökum ríkjanna síðustu daga.

Rubio er sagður hafa rætt símleiðis við annars vegar Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, og hins vegar Subrahmanyam Jaishankar, utanríkisráðherra Indlands, þar sem hann lagði áherslu á mikilvægi þess að draga úr spennunni milli ríkjanna.

„Hann tjáði einnig vilja Bandaríkjanna að Indland og Pakistan myndu ræða beint saman og hvatti til aðgerða til að auka samskipti,“ sagði Tammy Bruce, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins.

Hryggur yfir mannfalli óbreyttra borgara

Í samtali sínu við Sharif ítrekaði Rubio að pakistönsk stjórnvöld yrðu að taka „sannfærandi skref til að styðja hvers kyns stuðning við hryðjuverkasamtök“.

Í yfirlýsingu bandaríska utanríkisráðuneytisins segir að pakistanski ráðherrann hafi sagst vera leiður yfir mannfalli óbreyttra borgara í átökunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert