Kjör nýs páfa, hins bandaríska Leó XIV, kom mörgum á óvart, ekki síst löndum hans innan bandarísku kirkjunnar. Í Perú, þar sem Leó starfaði lengi, fagnaði fólk kjöri hans ákaft.
Kirkjuklukkur hljómuðu þegar kaþólikkar söfnuðust saman í Líma, höfuðborg Perú, á fimmtudaginn til að fagna kjöri Leós XIV en hann skildi þar eftir sig djúp spor eftir áralanga þjónustu í suðurameríska ríkinu.
„Hann er góður maður, jafnvel við þá sem eru slæmir,“ sagði hinn 73 ára gamli prestur Juan de Dios Rojas við fréttastofu AFP um nýkjörinn páfa.
Ljósmynd af Leó XIV, sem mun halda messu fyrir kardínála í Sixtínsku kapellunni í dag, er nú til sýnis í kapellu prestsins þar sem kaþólikkar úr söfnuði Rojas hafa safnast saman til að fagna kjörinu.
Leó XIV steig fyrst fæti á perúska grund fyrir um fjórum áratugum sem trúboði, áður en hann varð biskup í biskupsdæminu Chiclayo í norðvesturhluta landsins og öðlaðist ríkisborgararétt árið 2015.
„Páfinn er perúskur. Það er merki um að Guð sé að senda einhvern sem mun leysa vandamál landsins,“ sagði Salvador Oliva Ramos, 75 ára eftirlaunaþegi, þar sem hann var staddur fyrir utan dómkirkjuna í Líma.
„Hann borðar ceviche!“ bætti hann við.
„Ég grét af gleði þegar ég heyrði fréttirnar. Þetta er blessun fyrir Perú, þó að hann hafi fæðst í Bandaríkjunum, því hann bjó í Perú í nokkur ár,“ sagði Carolina Flores, 38 ára lögfræðingur, við fréttastofu AFP.
Það kom mörgum í opna skjöldu að Bandaríkjamaður hafi verið kjörinn sem páfi, ekki síst erkibiskupnum í Fíladelfíu en páfinn gekk í háskóla í borginni.
Í samtali við AFP sagði erkibiskupinn, Nelson J. Perez, að hann „hefði í raun ekki haldið að það yrði hann“.
„Ekki út af honum, heldur því að það að vera Bandaríkjamaður hefur bara ekki verið málið.“
Perez frétti tíðindin af kjöri nýs páfa á leið sinni frá Róm, þar sem hann hafði verið á ferðalagi.
„Ég fékk skilaboð frá einum starfsmanna minna. Þar sagði í stuttu máli: „Kardínáli Prevost, Leó XIV“,“ sagði Perez og bætti við:
„Ég var bara svona: „Vá, ég trúi þessu ekki“.“
Perez þekkti Prevost persónulega en þeir störfuðu saman í Perú snemma á þessari öld.
„Aldrei datt mér í hug að þessi einstaklingur myndi verða páfi,“ sagði Perez.