Átti í flóknu sambandi við fórnarlömbin

Hér má sjá teiknaða mynd af Erin Patterson við réttarhöldin.
Hér má sjá teiknaða mynd af Erin Patterson við réttarhöldin. AFP

Áströlsk kona sem ákærð er fyrir þrefalt morð og eina tilraun til manndráps af völdum eitraðra sveppa í máltíð, sem hún bar fram árið 2023, er sögð hafa sjaldan áður boðið fórnarlömbum sínum í mat. Þetta kemur fram í grein um réttarhöldin af fréttaveitu AFP.

Konan, hin fimmtuga Erin Patterson, neitar allri sök í málinu en réttarhöld í málinu standa nú yfir. 

Samtal við ungan son konunnar, sem tekið var upp í kjölfar dauðsfallanna, var í dag spilað á réttarhöldunum. Þar kom fram að sú ákærða hafi einu sinni áður boðið fórnarlömbum sínum, foreldrum eiginmanns síns, í mat en aldrei áður föðursystur hans og eiginmanni hennar. 

Foreldrar eiginmannsins og föðursystir hans létust eftir neyslu á matnum en eiginmaður föðursystur hans lifði af eftir langa dvöl á spítala. 

Foreldrarnir áttu í stormasömu sambandi 

Sonur konunnar minntist á í upptökunni að foreldrar hans hafi átt í „mjög“ neikvæðu sambandi sem leiddi til dauðsfallanna.

„Pabbi gerir marga hluti til þess að reyna að særa mömmu.“ 

Maður konunnar, Simon Patterson, hafi þá einnig hafnað boði hennar um að koma í hádegismat þennan örlagaríka dag. 

Borðuðu afgangana af matnum

Morguninn eftir hádegisverðinn sagði sonur konunnar að móðir hans hafi kvartað undan ógleði og vanlíðan og að þau hafi sleppt því að mæta í kirkju þennan daginn vegna þess.

Um kvöldið hafi þau borðað afganga ef kjötinu en að konan hafi tekið sveppina af þar sem börnin hennar væru „matvönd“.

Bæði sonur hennar og dóttir segjast ekki hafa veikst eftir neyslu á matnum.

Ákæruvaldið telur að Patterson hafi vísvitandi eitrað fyrir gestum sínum en verjendur konunnar segja að þetta hafi verið „hræðilegt slys“.

Talið er að réttarhöldin muni standa yfir næstu fimm vikur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert