Fimm látnir og tveggja saknað eftir aurskriðu

Björgunaraðilar á vettvangi.
Björgunaraðilar á vettvangi. Ljósmynd/X

Að minnsta kosti fimm manns létu lífið og tveggja er saknað eftir aurskriðu í grennd við næststærstu borg Kólumbíu, Medellin.

Andreas Julian Rendon, ríkisstjóri í Antioquia, segir í færslu á samfélagsmiðlinum X að björgunarsveitir hafi verið sendar til sveitarfélagsins Sabaneta, suður af Medellin, þar sem miklar rigningar ollu skriðuföllum og flóðum.

Antioquia verður oft fyrir áhrifum af aurskriðum á regntímanum en gríðarleg úrkoma hefur verið á svæðinu síðustu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert