Indverjar hafa stöðvað flug almennra borgara á 24 flugvöllum í norðurhluta landsins í kjölfar átaka Indlands og Pakstian sem hófst á miðvikudagskvöld.
Tæplega 50 hafa látið lífið, flestir í Pakistan, frá því Indverjar hófu loftárásir á Pakistan sem beinst hafa af hryðjuverkabúðum Pakstiana.
Í gærkvöld birtu indversk stjórnvöld lista yfir 24 flugvelli sem hafa verið lokaðir fyrir borgaralegt flug, þar á meðal í borgunum Jodhpur, Ludhiana og Amritsar nálægt vesturlandamærunum að Pakistan.
Sum af stærstu flugfélögum Indlands, þar á meðal Air India, IndiGo og SpiceJet, hafa aflýst yfir 100 flugferðum síðan á miðvikudag.
Indverjar hófu loftárásirnar í kjölfar bannvænnar hryðjuverkaárásar á ferðamenn á yfirráðasvæði Indlands í Kasmír-héraði í síðasta mánuði þar sem 26 manns létu lífið og síðan hafa fjandríkin, sem bæði búa yfir kjarnorkuvopnum, skipst á eldflauga-, dróna- og stórskotaliðsárásum yfir landamærin.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í gær stjórnvöld í Indlandi og Pakistan að grípa til tafarlausra aðgerða til að draga úr stigmögnun átaka þeirra á milli, og leita leiða til að ræða saman.