Segir af sér vegna „viðkvæmra mynda“

Thyberg hafði birt myndirnar á Grindr.
Thyberg hafði birt myndirnar á Grindr. AFP

Nýr þjóðaröryggisráðgjafi Svíþjóðar, Tobias Thyberg, hefur sagt af sér eftir aðeins hálfan sólarhring í embætti eftir að sænskur fjölmiðill komst yfir gamlar myndir hans af stefnumótaforriti sem sýna „viðkvæmt efni“.

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir málið alvarlegt og að mistök hafi orðið við öryggisráðstafanir þegar bakgrunnur Thybergs var kannaður fyrir starfið.

Thyberg, sem er 49 ára, hefur gegnt ýmsum stöðum fyrir sænsku ríkisstjórnina, m.a. sem sendiherra Svía gagnvart Úkraínu og Afganistan. Hann var skipaður sem þjóðaröryggisráðgjafi í gær.

Hefði átt að upplýsa ríkisstjórnina

Hann sagði af sér innan við tólf tímum síðar eftir að dagblaðið Dagens Nyheter (DN) fjallaði um myndir sem Thyberg hafði birt á aðgangi sínum á stefnumótaforritinu Grindr fyrir nokkrum árum.

„Ég hefði átt að upplýsa ríkisstjórnina um þetta en ég gerði það ekki,“ sagði Thyberg í viðtali við DN þar sem fjallað var um myndirnar.

„Þess vegna hef ég ákveðið að starfa ekki sem þjóðaröryggisráðgjafi.“

DN veitti ekki upplýsingar um hvað myndirnar sýndu en slúðurtímaritið Expressen greindi frá því að þær hefðu verið „kynferðislegar“.

Gætu notað myndirnar til að kúga

Kristersson sagði málið alvarlegt er hann ræddi við blaðamenn í Ósló. Hann viðurkenndi að mistök hefðu orðið við bakgrunnsathugun en Thyberg hefur gegnt stöðum þar sem hann hefur haft aðgang að trúnaðargögnum í mörg ár.

Njósnasérfræðingur sem DN ræddi við sagði myndina líklega komna í hendur erlendra valdaafla, sem gætu hugsanlega beitt þeim við kúgun.

„Það kæmi mér ekki á óvart ef leyniþjónustur annarra ríkja væru þegar komnar með þessar upplýsingar,“ sagði sérfræðingurinn Johan Holmlund, og vísaði m.a. til Bandaríkjanna, Rússlands og Kína.

Forverinn gleymdi trúnaðargögnum í ólæstum skáp

Málið er sagt sérstaklega neyðarlegt fyrir Kristersson vegna hneykslismáls sem varðar forvera Thybergs í starfi, Henrik Landerholm.

Landerholm sagði af sér í janúar eftir að það komst upp að hann hefði gleymt trúnaðargögnum á ráðstefnu á hóteli í mars árið 2023.

Hann hefur nú verið kærður fyrir kæruleysislega meðhöndlun á trúnaðargögnum.

Skipun Landerholms í embættið þótti einnig umdeild vegna vinskapar hans við Kristersson.

Landerholm skildi gögnin eftir í ólæstum skáp. Að því er fram kemur í ákærunni gegn honum hefur konan sem fann þau verið tengd við ofbeldisfulla öfgahópa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert