Trump rak umdeildan bókavörð

Carla Hayden hefur starfað sem bókavörður stærstabókasafns í heimi frá …
Carla Hayden hefur starfað sem bókavörður stærstabókasafns í heimi frá árinu 2016. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur rekið Cörlu Hayden, yfirbókavörð Bandaríkjaþings, úr starfi sínu. Hayden var fyrsta konan og fyrsti svarti einstaklingurinn sem gegndi stöðunni.

Þetta kemur fram í tölvupósti sem öldungadeildarþingmaðurinn Martin Heinrich deildi í gærkvöldi.

„Á starfstíma sínum færði dr. Hayden Bandaríkjaþingsbókasafnið til fólksins með framtakssemi sem náði til dreifbýlla samfélaga og gerði safnið aðgengilegt öllum Bandaríkjamönnum, bæði í eigin persónu og á netinu,“ sagði Heinrich í póstinum og bætti við:

„Á meðan Trump forseti vill banna bækur og segja Bandaríkjamönnum hvað þeir eigi að lesa - eða alls ekki að lesa - hefur dr. Hayden helgað starfsferil sinn því að gera lestur og leit að þekkingu aðgengilega öllum.“

Skref til að banna bækur

Hayden var skipuð sem yfirmaður bókasafnsins, sem er það stærsta í heimi, árið 2016 en hefur sætt gagnrýni frá íhaldsmönnum og þrýstihópum á þeirra vegum sem hafa sakað hana um að „innræta börn með róttækri kynferðislegri hugmyndafræði“.

Bókavörður Bandaríkjaþings ber ábyrgð á stefnumótun safnsins auk þess að hafa yfirumsjón með höfundarréttarskrifstofu Bandaríkjanna og skipa þjóðskáld.

Hakeem Jeffries, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild þingsins, gagnrýndi brottvikningu Hayden í yfirlýsingu og kallaði hana „smánarlega og nýjasta skrefið í viðvarandi tilraun Trumps til að banna bækur, fegra sögu Bandaríkjanna og snúa klukkunni til baka“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert