Pakistanar strax sakaðir um að rjúfa vopnahlé

Pakistan og Indland samþykktu tafarlaust vopnahlé í dag.
Pakistan og Indland samþykktu tafarlaust vopnahlé í dag. AFP

Ráðamenn í Indlandi hafa strax sakað Pakistana um rjúfa vopahléið sem um var samið fyrr í dag.

Starfsmenn AFP-fréttaveitunnar segjast hafa heyrt sprengingar í Srinagar í Kasmír, sem er undir stjórn Indlands, nokkrum tímum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um vopnahléið fyrr í dag.

„Það er ekkert vopnahlé,“ skrifar Omar Abdullah, forsætisráðherra í Jammu og Kasmír, á samfélagsmiðilinn X. Hann segir að loftvarnakerfi í Srinagar sé farið í gang. 

„Pakistan hefur brotið tvíhliða samkomulagið við Indland,“ hefur AFP einnig eftir heimildarmanni sínum innan ríkisstjórnar Indlands.

Annar heim­ild­armaður AFP-frétta­veit­unn­ar inn­an rík­is­stjórn­ar Ind­lands sagði fyrr í dag að Ind­land og Pak­ist­an hefðu samið beint við hvort annað, ólíkt því sem ráðamenn í Banda­ríkj­un­um höfðu haldið fram. 

Um 60 hafa manns fallið í árás­un­um vegna átaka Ind­lands og Pak­ist­ans síðustu daga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert