Vopnahlé hefur verið samþykkt á milli Indlands og Pakistans.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth social og sagði að vopnahléið hefði þegar tekið gildi.
Utanríkisráðherra Pakistans, Ishaq Dar, hefur staðfest þetta.
„Pakistan og Indland hafa samþykkt vopnahlé sem tekur gildi tafarlaust. Pakistan hefur alltaf kappkostað að stuðla að friði og öryggi á svæðinu, án þess að gefa eftir fullveldi sitt og friðhelgi landamæra sinna!,“ sagði Dar á X.
Vikram Misri, utanríkisráðherra Indlands, hefur sömuleiðis staðfest vopnahléð. Segir hann að Indland og Pakistan muni „stöðva alla skothríð og öllum hernaðaraðgerðum á landi, í lofti og á sjó“.
Segir hann að vopnahléið hafi tekið í gildi klukkan 17 á indverskum tíma, eða 11.30 í morgun að íslenskum tíma.
„Eftir langa nótt viðræðna sem Bandaríkin höfðu milligöngu um, er mér ánægja að tilkynna að Indland og Pakistan hafa samþykkt ALGJÖRT OG TAFARLAUST VOPNAHLÉ,“ sagði Trump á Truth Social og hrósaði löndunum tveimur fyrir að „nota skynsemi og mikla greind.“
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, sagði að samkomulagið væri afrakstur umfangsmikilla samningaviðræðna hans og bandaríska varaforsetans J.D. Vance við forsætisráðherra Indlands og Pakistans, Narendra Modi og Shehbaz Sharif, og aðra háttsetta embættismenn.
„Mér er ánægja að tilkynna að ríkisstjórnir Indlands og Pakistans hafa samþykkt tafarlaust vopnahlé og að hefja viðræður um víðtæk málefni á hlutlausum vettvangi,“ sagði Rubio á X.
Heimildarmaður AFP-fréttaveitunnar innan ríkisstjórnar Indlands segir að Indland og Pakistan hafi samið beint við hvort annað, ólíkt því sem ráðamenn í Bandaríkjunum hafa haldið fram.
„Stöðvun skotárása og hernaðaraðgerða milli Indlands og Pakistans var unnin beint á milli landanna tveggja,“ sagði heimildarmaðurinn við AFP en hann vildi ekki gefa upp nafn sitt.
Fréttin hefur verið uppfærð.