Yfir 100 látnir í flóðum í Kongó

Rústir húsa í Kinshasa í Kongó.
Rústir húsa í Kinshasa í Kongó. AFP

Yfir 100 manns, þar af mörg börn, eru látin eftir gríðarleg flóð í austurhluta Lýðveldisins Kongó.

Úrhellisrigning varð til þess að Kasaba áin flæddi yfir bakka sína og hreif með sér stór tré, stóra steina og leðju og olli mikilli eyðileggingu á mörgum húsum.

Fórnarlömbin eru aðallega börn og gamalmenni, segir Bernard Akili, svæðisfulltrúi, í samtali við AFP-fréttveituna. 

Hann segir að 104 séu látnir og 28 séu slasaðir en um 150 heimili eyðilögðust í flóðunum.

Slíkar náttúruhamfarir eru tíðar í Kongó og sérstaklega við strendur stóru stöðuvatnanna í austurhluta landsins og fyrir tveimur árum létust 400 manns í flóðum á stöðum sem eru við strönd Kivuvatns í Suður-Kivu héraði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert