Bilun í flugturni í París

Aflýsa þurfti 130 flugferðum á Orly-flugvelli.
Aflýsa þurfti 130 flugferðum á Orly-flugvelli. AFP

Bilun í flugturni hefur leitt til þess að aflýsa þurfti 130 flugferðum á Orly-flugvelli í París í Frakklandi. 

Talsmaður flugvallarins sagði að aflýsa hefði þurft um 40% af komum og brottförum dagsins. 

Flugmálayfirvöld í Frakklandi sögðu að „bilun í flugstjórnarkerfum í flugturninum á Orly síðdegis“ hefði leitt til röskunarinnar. 

Heimildir AFP-fréttaveitunnar herma að bilun hefði orðið í ratsjá turnsins. 

Óvíst er hvort bilunin muni hafa áhrif á ferðir morgundagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert