Konur handteknar fyrir alvarlega líkamsárás

Lögreglan var kölluð í miðbæ Finspång í Svíþjóð snemma í …
Lögreglan var kölluð í miðbæ Finspång í Svíþjóð snemma í morgun þar sem 45 ára gömul kona fannst með stungusár. mbl.is/Gunnlaugur

Tvær konur á fimmtugsaldri hafa verið handteknar grunaðar um alvarlega líkamsárás og tilraun til manndráps í Finspång í Svíþjóð.

Expressen greinir frá. Lögreglan var kölluð í miðbæ Finspång snemma í morgun þar sem 45 ára gömul kona fannst með stungusár.

Hún var flutt á sjúkrahús og er líðan hennar sögð stöðug að sögn lögreglu. Lögreglan handtók konurnar á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert