Munu leita að andamerískum áróðri á samfélagsmiðlum

Marco Rubio er utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Ráðuneytið hefur gefið það út …
Marco Rubio er utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Ráðuneytið hefur gefið það út að það áskili sér rétt til þess að leita eftir and-amerískum áróðri á samfélagsmiðlum nemenda. AFP/Win McNamee

Erlendir ríkisborgarar sem ætla að sækja nám í Bandaríkjunum mega ekki vera með læsta samfélagsmiðlareikninga svo að yfirvöld geti leitað eftir „andamerískum“ áróðri þar. 

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna gaf út tilmælin í dag. Ráðuneytið hafði áður gefið það út í maí að það myndi ekki gefa út vegabréfsáritanir fyrir erlenda nemendur á meðan það væri að vinna í nýjum tilmælum fyrir erlenda nemendur. 

Þau hafa nú verið gefin út og því munu bandarísk yfirvöld taka við umsóknum um vegabréfsáritanir erlendra nemenda á ný. 

„Aukin skoðun á samfélagsmiðlum mun tryggja það að við skoðum gaumgæfilega hverja einustu manneskju sem reynir að heimsækja landið okkar,“ sagði háttsettur embættismaður í utanríkisráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert