Segir markmið Ísraels tvíþætt

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra segir markmið Ísraels tvíþætt.
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra segir markmið Ísraels tvíþætt. AFP/Ronen Zvulun

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, heitir því að eyða kjarnorku- og flugskeytaógn Írans í garð Ísraels.

„Við erum skuldbundin því að eyða allri kjarnorkuógn, ógninni um eyðileggingu Ísraels með kjarnorku,“ sagði Netanjahú við blaðamenn í borginni Beersheba, þar sem spítali hafði nýlega orðið fyrir flugskeytaárás frá Íran.

„Markmið okkar er tvíþætt – kjarnorka, loftskeyti. Við ætlum að fjarlægja þau. Við erum í því ferli að klára að fjarlægja þessa ógn núna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert