Íran muni verja „lögmæt réttindi“ sín

Íranar fagna vopnahléi milli Írans og Ísraels.
Íranar fagna vopnahléi milli Írans og Ísraels. AFP/Atta Kenare

Masoud Pezes­hki­an for­seti Írans segir landið sitt ekki sækjast eftir kjarnorkuvopnum en það muni halda áfram að verja „lögmæt réttindi“ sín í friðsamlegri notkun kjarnorku.

Í símtali við forseta Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmanna, Mohammed bin Zayed, sagði Pezes­hki­an að Ísrael og Bandaríkin geti ekki náð fram „ósanngjörnum væntingum sínum með valdi“. Sagði hann að Íran hefði neyðst til að verja sig, og hann vonaði að Íranar myndu ekki neyðast aftur til þess að berjast.

„Við ætlumst til þess að þú útskýrir fyrir þeim, í viðskiptum þínum við Bandaríkin, að íslamska lýðveldið Íran sé aðeins að reyna að verja lögmæt réttindi sín. Það hefur aldrei sóst eftir að eignast kjarnorkuvopn og sækist ekki eftir því núna,“ sagði forseti Írans við starfsbróður sinn og bætti við að Íran væri „tilbúið til að leysa vandamálið við samningaborðið“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert