Ætla að senda Sýrlendinga aftur til Sýrlands

Friedrich Merz er kanslari Þýskalands.
Friedrich Merz er kanslari Þýskalands. AFP

Þýskaland hyggst hefja að vísa sýrlenskum ríkisborgurum sem eru á sakaskrá úr landi. Austurríki gerði slíkt hið sama nýverið. 

Austurríki var fyrst ríkja inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins til að vísa flótta­manni, sem ekki hef­ur dval­ar­leyfi, aft­ur til Sýr­lands í mörg ár. Ástæðan fyrir því að ríki hafa haldið aftur af því að senda menn aftur Sýrlands hefur verið borgarastríð í landinu sem geisaði síðustu ár. Nú eru þó komin ný stjórnvöld.

Innanríkisráðuneyti Þýskalands greindi frá fyrirætlunum fyrr í dag. Ráðuneytið hefur gefið fyrirmæli til flóttamannastofnunarinnar um að grípa til hertra aðgerða gegn sýrlenskum afbrotamönnum.

Í samskiptum við sýrlensk yfirvöld

Sérstök áhersla verður lögð á að vísa úr landi einstaklingum sem teljast hættulegir og þá tekur ráðuneytið fram að alvarleg brot geti leitt til sviptingar hælisréttar og brottvísunar.

Innanríkisráðuneyti Þýskalands hefur verið í samskiptum við sýrlensk yfirvöld varðandi fyrirhugaðar brottvísanir.

Í Þýskalandi eru búsettir um milljón Sýrlendingar og flestir þeirra komu á flótta frá Sýrlandi á árunum 2015 og 2016. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert