Auðjöfurinn Elon Musk segist hafa stofnað sinn eigin stjórnmálaflokk. Flokkurinn ber nafnið „Ameríkuflokkurinn“.
Í færslu á samfélagsmiðlinum X sagði Musk:
„Þegar kemur að því að gera Bandaríkin gjaldþrota með sóun og spillingu, búum við í eins flokka kerfi, ekki lýðræði. Í dag er Ameríkuflokkurinn stofnaður til að gefa Bandaríkjamönnum frelsið sitt aftur.“
Musk hefur á síðustu vikum látið vita af áformum sínum og gagnrýnt þingmenn verulega fyrir að auka skuldsetningu Bandaríkjanna.
Hótaði hann því að ef efnahagsfrumvarp Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, „Stóra fallega frumvarpið“, yrði að veruleika þá myndi hann stofna flokkinn.
Bandaríkjaþing samþykkti frumvarpið og Trump undirritaði það í gær.
Musk var á síðasta ári einn stærsti styrktaraðili repúblikana en undanfarið hafa Musk og Trump gagnrýnt hvor annan harkalega á eigin samfélagsmiðlum.
By a factor of 2 to 1, you want a new political party and you shall have it!
— Elon Musk (@elonmusk) July 5, 2025
When it comes to bankrupting our country with waste & graft, we live in a one-party system, not a democracy.
Today, the America Party is formed to give you back your freedom. https://t.co/9K8AD04QQN