Móðir Ísraelsmanns sem var tekinn í gíslingu af Hamas-hryðjuverkasamtökunum á þessum degi fyrir tveimur árum síðan segist ekki vita hvort sonur hennar sé lífs eða liðinn.
Herut Nimrodi segir í viðtali við BBC að hún óttaðist það versta fyrir son sinn, Tamir, sem var óbreyttur hermaður, en hún heldur í vonina um að hann sé enn á lífi tveimur árum eftir að hafa verið numinn brott af Hamas-liðum.
Hún segir að sonur sinn sé eini ísraelski gíslinn sem fjölskylda hans hefði ekki fengið upplýsingar um hvort sé á lífi eða sé látinn.
Nimrodi segist binda vonir um að friðarplan Donalds Trumps Bandaríkjaforseta muni leiða til þess að allir gíslarnir sem haldið er á Gasa verði leystir úr haldi.
„Það er mjög áríðandi að leysa gíslana úr haldi, þá sem eru enn á lífi og jafnvel þá sem hafa látist. Við þurfum að fá þá heim. Jafnvel fjölskyldurnar sem hafa fengið skilaboð um að ástvinir þeirra séu látnir, þær sætta sig ekki við það því þær þurfa sannanir,“ segir Nimrodi.
Tamir er einn af 47 gíslum sem numdir voru á brott 7. október og enn er haldið á Gasa. Talið er að 20 þeirra séu enn á lífi. Síðast sá hún son sinn í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum 7. október 2023.
„Ég sá Tamir í náttfötunum sínum. Hann var berfættur. Hann var ekki með gleraugun sín. Hann sér varla neitt án þeirra. Hann var skelfingu lostinn,“ segir hún.
