Sex látnir eftir jarðskjálftann öfluga á Filippseyjum

Björgunarfólk á vettvangi í bænum Baganga í Davao Oriental-héraði.
Björgunarfólk á vettvangi í bænum Baganga í Davao Oriental-héraði. AFP

Í það minnsta sex eru látnir eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,4 reið yfir suðurhluta Filippseyja um klukkan 10 í morgun að staðartíma.

Skjálftinn átti upptök um 20 kílómetra frá bænum Manay á Mindanao-svæðinu samkvæmt upplýsingum frá jarðvísindastofnun Bandaríkjanna.

Þrír gullnámuverkamenn létust þegar göng hrundu í fjöllunum vestan við Manay, að sögn björgunarmannsins Kent Simeon frá bænum Pantukan. Einn verkamaður var dreginn lifandi út úr göngunum og nokkrir aðrir slösuðust.

Fyrir utan verslunarmiðstöð í Butuan, á suðurhluta eyjarinnar Mindanao.
Fyrir utan verslunarmiðstöð í Butuan, á suðurhluta eyjarinnar Mindanao. AFP

Í borginni Mati, stærsta þéttbýlisstaðnum nálægt upptökum skjálftans, lést einn maður þegar veggur hrundi og þá lést annar maður úr hjartaáfalli á sömu slóðum. Jafnframt lést einn í Davao-borg, sem eru um 100 kílómetrum vestan við upptök jarðskjálftans.

Filippseysk yfirvöld gáfu út flóðbylgjuviðvörun skömmu eftir skjálftann og fyrirskipuðu brottflutning meðfram austurströndinni en viðvörunin var síðan dregin til baka.

Jarðskjálftinn í morgun átti sér stað aðeins 11 dögum eftir að jarðskjálfti af stærðinni 6,9 reið yfir Cebu-hérað þar sem 75 fórust og 1.200 manns slösuðust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert