Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðaráð Rauða krossins hafa kallað eftir því að allar landamærastöðvar til Gasa verði opnaðar til að koma bráðnauðsynlegri hjálp inn á palestínska landsvæðið sem er í herkví Ísraels.
Halda þau því fram að vopnahléið á Gasasvæðinu, sem komið var á samkvæmt áætlun Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þurfi að fela í sér opnun landamærastöðva til að koma hjálpargögnum á svæðið.
„Það er það sem mannúðarsamtök, þar á meðal Alþjóðaráð Rauða krossins, hafa kallað eftir síðustu klukkustundirnar, að það verði tryggt að vegna gríðarlegrar þarfar verði allar landamærastöðvar opnaðar,“ sagði Christian Cardon, talsmaður Alþjóðaráðs Rauða krossins, við fréttamenn fyrr í dag.
Jens Laerke, talsmaður mannúðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, OCHA, bætti við að nauðsynlegt væri að opna allar landamærastöðvarnar.
Hann viðurkenndi þó að ekki væru allar stöðvarnar starfhæfar um þessar mundir, sumar væru að hluta til eyðilagðar en einnig þyrfti að hreinsa vegi innan Gasasvæðisins til að vörubílar með mat, læknisaðstoð, eldsneyti, vatn og aðrar nauðsynjar kæmust þá.
Jafnframt sagði hann að Sameinuðu þjóðirnar ættu 190.000 tonn af hjálpargögnum tilbúin til flutnings til Gasa.
Ricardo Pires, talsmaður UNICEF, sagði þá að Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna ætti 1.370 vörubíla tilbúna til að fara inn á svæðið.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lagði einnig áherslu á nauðsyn þess að senda meiri hjálp til Gasa.
Þann 22. ágúst lýstu Sameinuðu þjóðirnar yfir hungursneyð á Gasa en Ísrael stöðvaði allan flutning hjálpargagna á svæðið þann 2. mars og hleypti engum gögnum þangað fyrr en í maí.
Ísrael hefur sakað Hamas um að skapa neyðarástand og stela hjálpargögnum en Ísraelsher er sjálfur sakaður um að hafa vopnað palestínsk glæpagengi í baráttu sinni gegn Hamas og leyft þeim að ræna hjálparsendingum.