Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir stuðningi við Andrew Cuomo í baráttunni um borgarstjórastólinn í New York. Trump hvetur kjósendur til að kjósa ekki vinstrimanninn Zohran Mamdani, sem er talinn líklegastur til að ná kjöri.
Cuomo, sem býður sig fram sem óháður, hefur lengi gagnrýnt Trump. Hann var áður ríkisstjóri í New York og var þá í Demókrataflokknum.
„Hann er ekki að lýsa yfir stuðningi við mig. Hann er andsnúinn Mamdani,” sagði Cuomo um stuðningsyfirlýsingu Trumps, að sögn BBC.
Forsetinn hafði áður sagt að hann yrði tregur til að senda meira en lágmarks opinbert fé til heimaborgar sinnar New York ef Mamdani næði kjöri. Ítrekaði hann þessar hótanir sínar í færslu á Truth Social í gærkvöldi.
