Játaði manndráp fyrir dómi

Maðurinn sem er ákærður fyrir manndráp í Reykjanesbæ kemur í …
Maðurinn sem er ákærður fyrir manndráp í Reykjanesbæ kemur í réttarsalinn í fylgd lögreglu. mbl.is/Kristinn

Rúmlega þrítugur karlmaður játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að hafa banað 53 ára gömlum manni við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ. Hann lýsti því hvernig hann tók upp steinhellu og kastaði í höfuð mannsins þar sem hann lá í jörðinni. Árásin var tilefnislaus með öllu.

Að því er maðurinn, Ellert Sævarsson, sagði fyrir dómi hitti hann hinn látna á göngustíg við Bjarnarvelli að morgni 8. maí sl. Hafði hann þá verið undir áhrifum áfengis í tvo daga auk þess að neyta amfetamíns. Ellert réðst á manninn, sparkaði í hann þar sem hann lá í jörðinni og tók að endingu upp hellustein og kastaði í höfuð hans.

mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær

Miðvikudaginn 27. mars