Ásdís Halla Bragadóttir ráðin bæjarstjóri í Garðabæ

Ásdís Halla tekur við bæjarstjórastöðunni af Ingimundi Sigurpálssyni.

Ásdís Halla tekur við bæjarstjórastöðunni af Ingimundi Sigurpálssyni.
mbl.is

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar í dag var Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnmálfræðingur, ráðin í starf bæjarstjóra Garðabæjar. Hún tekur við starfinu af Ingimundi Sigurpálssyni. Ásdís Halla er 32 ára gömul og búsett í Garðabæ. Hún lauk lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard-háskóla vorið 2000.

Að námi loknu starfaði Ásdís Halla sem blaðaðmaður hjá Morgunblaðinu og árin 1993 til 1995 gegndi hún starfi framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Árin 1995-1999 var Ásdís Halla aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Frá 1. apríl 2000 hefur Ásdís Halla starfað sem framkvæmdastjóri þróunar- og nýsköpunarsviðs Háskólans í Reykjavík. Ásdís Halla hefur verið virk í félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins og var formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna árin 1997-1999. Ásdís Halla er gift Aðalsteini Jónassyni, hæstaréttarlögmanni og eiga þau tvo syni Jónas Aðalstein, f. 1990 og Braga, f. 1999.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert