Porsche stolið á Akureyri

Lögreglan á Akureyri lýsir eftir bíl, sem stolið var frá Frostagötu á Akureyri afaranótt miðvikudags. Bíllinn er af gerðinni Porsche 964, árgerð 1993. Hann er blár að lit og hefur skráningarnúmerið AL-996. Þeir sem geta gefið upplýsingar um bifreiðina eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464 7700.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert