Skrifað undir samning um Fáskrúðsfjarðargöng í dag

mbl.is/Kristinn

Skrifað verður undir verksamninga um byggingu Fáskrúðsfjarðarganga í dag. Vegamálastjóri sem verkkaupi og forstjóri Ístaks sem verktaki undirrita samningana, sem samgönguráðherra staðfestir. Samgönguráðherra, vegamálastjóri, fulltrúar verktaka og sveitarstjórar Búðahrepps og Fjarðabyggðar verða m.a. viðstaddir undirritunina sem verður í félagsheimilinu Skrúð á Fáskrúðsfirði og hefst klukkan 15.

Með Fáskrúðsfjarðargöngum og tilheyrandi vegagerð styttist leiðin suður með Austfjörðum um 34 kílómetra og milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar um 31 km. Aðeins verða nú 18 km á milli þessara tveggja staða í stað 54 km nú. Um leið verða leystir af hólmi hættulegir vegarkaflar með erfiðum beygjum, blindhæðum og takmörkuðu burðarþoli.

Fáskrúðsfjarðargöng verða tvíbreið, 5,7 km löng sprengd göng, með 200 m löngum forskálum, samtals 5,9 km. Fyrir miðju ganganna ná þau mestri hæð yfir sjó, eða 124 m. Verktaki við gerð Fáskrúðsfjarðarganga er Ístak hf., ásamt E. Pihl & Søn AS. Framkvæmdir hefjast væntanlega í apríl, en framkvæmdatími er áætlaður tvö og hálft ár og göngin eiga að vera tilbúin haustið 2005. Áætlaður kostnaður við gerð ganganna er 3,8 milljarðar króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert