BBC world ekki send út lengur

Norðurljós hafa hætt endurvarpi útvarps heimsþjónustu breska ríkisútvarpsins BBC (BBC World Service). Að sögn Kristjáns Jónssonar, forstöðumanns og markaðsstjóra dagskrárdeildar útvarpssviðs Norðurljósa, var nauðsynlegt að hætta endurvarpinu vegna hagræðingar og breytinga á dagskrá útvarpssviðs.

"Við urðum að taka þessa ákvörðun í ljósi hagræðingar, enda hefur þetta einungis verið kostnaður fyrir okkur. Hins vegar vildum við veita hlustendum útvarpssviðs Norðurljósa þessa þjónustu eins lengi og við gátum," segir Kristján. Að hans sögn hefur nokkuð borið á athugasemdum hlustenda vegna þessa, en við það verði að sitja um óákveðinn tíma, að minnsta kosti meðan önnur útsendingartíðni liggi ekki á lausu.

Rokkstöðin Skonrokk til starfa

Á tíðninni 90,9, þar sem BBC World var áður send út, verður opnuð ný útvarpsstöð á morgun, Skonrokk. Að sögn Kristjáns verður það klassísk rokkstöð. "Þar verður spiluð rokktónlist alveg frá um 1963 til um 1993," segir hann. Sigurjón Kjartansson og Dr. Gunni verða helstu umsjónarmenn stöðvarinnar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert