Það var mikið um að vera á þvottaplani Essó á Húsavík síðdegis þegar fréttaritari Morgunblaðsins átti þar leið um. Þar voru bíleigendum boðið upp á þvott á bílum sínum gegn vægu gjaldi og þeir sem stjórnuðu þvottakústunum voru nýnemar Framhaldsskólans á Húsavík, busarnir svokölluðu. Ekki er það nú svo gott að nýnemarnir njóti góðs af verkinu því útskriftarnemar skólans stjórnuðu verkinu og hirtu innkomuna. Er þetta hluti af innvígslu nýnemanna í skólann.
Framhaldsskólinn á Húsavík var settur sl. mánudag og eru nemendur í dagskóla 156 talsins sem er talsverð fjölgun frá í fyrra. Þá munu 12 nemendur frá Raufarhöfn stunda fjarnám við skólann í vetur, í einum til tveimur áföngum hver.