Leit hefur farið fram að konu sem hvarf 4. júlí

Rannsókn hefur farið fram í húsi við Stórholt þar sem …
Rannsókn hefur farið fram í húsi við Stórholt þar sem vitað var að konan kom skömmu áður en hún hvarf. mbl.is/Júlíus

Lögreglan í Reykjavík segir, að unnið hafi verið markvisst að rannsókn á hvarfi Sri Rhamawati, 33 ára gamallar konu, sem síðast er vitað um að morgni sunnudagsins 4. júlí. Leit hefur farið fram á nokkrum stöðum og hefur lögregla notið aðstoðar björgunarsveita, m.a. sérhæfðra leitarhópa. Þyrla hefur verið notuð til að skoða ákveðin svæði. Þá hafa lögreglumenn með leitarhunda farið um á völdum stöðum og loks hafa lögreglumenn skipulega farið um staði í nágrenni Reykjavíkur. Lífssýni fundust við vettvangsrannsókn og eru þau nú til rannsóknar á rannsóknarstofu í Noregi. Segir lögreglan að niðurstöðu sé að vænta í næstu viku.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir, að tilkynning hafi borist um hvarf konunnar að kvöldi mánudagsins 5. júlí og rannsókn hafi hafist strax að morgni þriðjudagsins 6. júlí. Fljótleg hafi vaknað grunsemdir um refsivert athæfi og að ekki væru eðlilegar skýringar á hvarfi konunnar. Eftir ítarlega vettvangsrannsókn strax um morguninn í íbúð þar sem síðast er vitað um konuna, var barnsfaðir hennar og fyrrum sambýlismaður handtekinn. Hann var daginn eftir úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald.

„Um er að ræða alvarlegt mál og fyrstu dagarnir eru mjög mikilvægir fyrir frumrannsókn málsins. Lögregla verður að eiga það mat hvenær tímabært er að skýra frá einstökum atvikum í rannsókninni svo og að upplýsa hvaða upplýsingar eru veittar," segir í tilkynningu lögreglu. Segir þar einnig að lögregla hafi átt gott samstarf við fjölmiða sem hafi yfirleitt sýnt því skilning að hún geti ekki alltaf upplýst jafnóðum um allar sínar aðgerðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert