John McCain: Vill áfram varnarviðbúnað hér á landi

John McCain og Hillary Clinton við komuna til Íslands í …
John McCain og Hillary Clinton við komuna til Íslands í dag. mbl.is/Þorkell

John McCain, öldungadeildarþingmaður, sem fer fyrir bandarískri þingnefnd hér á landi, telur að Bandaríkjamenn eigi að viðhalda varnarviðbúnaði hér á landi. Hann segir að Ísland gegni mikilvægu hlutverki, landfræðilega og hernaðarlega, milli Ameríku og Evrópu.

John McCain, sem ásamt öðrum úr þingnefndinni ræddi vetnismál við íslenska fulltrúa í Bláa lóninu í hádeginu, þakkaði stuðning Íslendinga við Bandaríkin í kalda stríðinu. Hann sagði eftir fundinn að Íslendingar og Bandaríkjamenn ættu að geta komist að einhverri niðurstöðu um viðbúnað bandaríska hersins hér á landi, hvort sem það yrðu áfram fjórar orrustuþotur á Keflavíkurflugvelli eða annar viðbúnaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert