Nýr línuhraðall á Landspítala

Geislameðferðardeild krabbameinslækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi hefur fengið nýjan línuhraðall og var tækið kynnt fyrir Jóni Kristjánssyni, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, stjórnendum og viðkomandi starfsmönnum spítalans í dag.

Línuhraðallinn er framleiddur í Bandaríkjunum og kemur í stað eldra tækis sem þjónað hefur við geislameðferð krabbameinssjúklinga frá árinu 1989. Línuhraðallinn gamli var keypt til landsins á sínum tíma í kjölfar átaks Lions hreyfingarinnar á Íslandi sem safnaði fyrir honum með sölu rauðrar fjaðrar árið 1985.

Nýja tækið kostar um 170 milljónir króna. Segir Landspítali-háskólasjúkrahús að hátækniþróun í geislameðferð hafi leitt til bætts árangurs í baráttu við krabbamein, í lengra lífi sjúklinga og minni aukaverkunum þar sem heilbrigðum vef sé nú hlíft betur en áður hafi verið unnt.

Í K-byggingu er sérhæfð aðstaða fyrir geislameðferð með línuhröðlum, sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Það húsnæði var tekið í notkun árið 1989 og hefur geislameðferð verið þar með tveimur háorku meðferðartækjum fyrir ytri geislameðferð, línuhraðli og kóbalttæki fram til ársins 1995 en með tveimur línuhröðlum frá árinu 1996.

Árið 2003 komu 449 sjúklingar í 9206 heimsóknir vegna geislameðferðar og undirbúnings hennar. Fjöldi gefinna geislareita það ár var 20.359. Áætlað hefur verið að þörf verði fyrir þriðja háorkutækið síðar á þessum áratug, miðað við þróun í nútíma geislameðferð og að teknu tilliti til aukinnar tíðni krabbameina. Segir sjúkrahúsið, að þessi fyrirsjáanlega aukning byggi m.a. á breyttri aldursdreifingu íslensku þjóðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert