Halldór Ásgrímsson sendir Tony Blair samúðarskeyti

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, hefur sent fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, samúðarskeyti vegna hryðjuverkanna í Lundúnum í morgun. Þá hefur ríkisstjórnin jafnframt ákveðið í ljósi þessara hörmunga að flaggað skuli í hálfa stöng við opinberar stofnanir í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert