Mikið álag á fréttavefjum vegna árásanna í Lundúnum

Mikið álag hefur verið á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, sem og aðra fréttavefi, vegna atburðanna í Lundúnum í morgun. Vef mbl.is berast um 100 beiðnir á sekúndu þessa stundina og geta vefþjónar því verið nokkrar sekúndur að svara. Þá er mikið álag á breskum fréttavefjum vegna hryðjuverkaárásanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert