Allt frá því að vera rauðglóandi yfir í ísblátt

Ólafur Elíasson.
Ólafur Elíasson. mbl.is/Kristinn

„Þetta er tilraun til að skýra klæðninguna á húsinu," segir Ólafur Elíasson og bendir á lítið líkan af samskonar efni og væntanlegt tónlistarhús í Reykjavík verður klætt með. Ólafur, sem er listrænn hönnuður hússins, leggur sem sagt til í hönnun sinni á tónlistarhúsinu að það verði klætt eins konar kápu úr gleri. Líkanið hefur smærri glugga en húsið, þar sem gert er ráð fyrir að þeir verði um 1,80 metra háir í raun, en gerð þess er eins; kristalslaga gluggar í tvöföldum stálrömmum endurvarpa ólíkri birtu eftir því hvernig ljós fellur á þá.

"Ég hef unnið með glerið sem andlit hússins og hvernig það muni taka sig út á mismunandi árstíðum og ólíkum tímum dagsins. Á Íslandi er ljósið mjög breytilegt; á veturna skín sólin mjög lágt og lýsir þannig á glerið að það endurspeglast allt öðruvísi en að sumri þegar sólin er miklu hærra á lofti," segir Ólafur og bætir við að hann vilji gjarnan koma hugmyndunum þannig frá sér að þær séu framkvæmanlegar, í stað þess að vera einungis hugmyndir að útliti. Til þess hefur hann meðal annars fengið í lið með sér sérfræðinga á sviði burðarþolsfræða.

Handbragð Ólafs

Tónlistarhús í Reykjavík kemur sem sagt til með að líta út á ólíkan hátt eftir því hvaða tími dagsins eða ársins er hverju sinni. Þannig gæti byggingin verið allt frá því að vera rauðglóandi yfir í að vera ísblá, eftir tíðarfari og tíma. Ólafur bendir ennfremur á að á kvöldin, þegar ljós verði kveikt í byggingunni, muni enn eitt útlitið bætast við, þegar ljós stafar innan úr glerklæddri byggingunni.

Hönnun hússins virðist vissulega ætla að bera handbragð Ólafs með sér, ekki síst þegar hafðir eru í huga ljósaskúlptúrar sem hann gerði fyrir nýopnað óperuhús í Kaupmannahöfn, en þeir endurkasta einmitt ólíku ljósi eftir því hvar horft er á þá og hvernig birtan fellur á þá. Þess má einnig geta, að sömu arkitektar og að nýja óperuhúsinu í Kaupmannahöfn, teiknistofa Hennings Larsens, eiga einnig heiðurinn af arkitektúrnum í væntanlegu tónlistarhúsi.

"Já, ég hef unnið mikið með kristalsformið," svarar Ólafur aðspurður hvort hönnuninni nú svipi til þess sem hann hefur áður gert og fengist við. "Kristallinn er form sem kemur úr náttúrunni, eins og við þekkjum til dæmis úr stuðlabergi hér á Íslandi. Hins vegar hefur hönnun byggð á henni oft verið fremur þung að mínu mati, til dæmis Hallgrímskirkja - eins frábær og hún er - sem er mjög hástemmd. Ég reyni frekar að draga fram tilfinninguna um úða eða silki og nota samt þennan sama strúktúr."

Ekki útópísk klæðning

Ólafur segist hlakka til að vinna við frekari hönnun hússins. "Það er gaman að koma að hönnun húss frá upphafi, í stað þess að bæta við í þegar frágengnar byggingar smáhlutum á borð við teppi eða annað. Það er gaman að gera hlutina alveg sjálfur og ég held að þetta geti orðið mjög sérstakt, enda hefur svona klæðning held ég aldrei verið notuð utan á hús áður. Að því leyti er þetta mjög spennandi," segir hann.

Hann neitar því ekki að framkvæmdin verði bæði flókin og kostnaðarsöm. "Það þarf mikla vinnu, bæði listræna og verkfræðilega, til að framkvæma þetta. En ég hef verið í nánu sambandi við glerfyrirtæki, límfyrirtæki og skrúfuframleiðendur í ferlinu til að komast að því hvernig hægt er að gera þetta, enda þætti mér leiðinlegt að vinna að einhverju sem væri svo ekki hægt að framkvæma. Það kostar allt peninga og þetta er kannski ekki ódýrasta húsaklæðning sem gerð hefur verið hér á landi, en hún er ekki útópísk. Það lítur kannski þannig út, en hún er það ekki," segir Ólafur að síðustu.

Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is

Forsalur Tónlistarhússins. Séð af annarri hæð niður á þá fyrstu, …
Forsalur Tónlistarhússins. Séð af annarri hæð niður á þá fyrstu, sem verður almenningssvæði.
Glerhjúpur Ólafs Elíassonar er gerður úr sexstrendum sívalningum sem varpa …
Glerhjúpur Ólafs Elíassonar er gerður úr sexstrendum sívalningum sem varpa lit og ljósi á innviði byggingarinnar og minna á stuðlaberg.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert