„Hlýlega vafinn í straumanna arm"

Stóri tónleikasalurinn verður konsertsalur Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun einnig hýsa …
Stóri tónleikasalurinn verður konsertsalur Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun einnig hýsa alla stærri tónlistarviðburði. Salurinn verður klæddur viði, líklega hlyni, og verður í hlýjum litatónum. Form viðarins minnir á jarðmyndanir í íslenskri náttúru.

„Verkefnið er að byggja og reka tónlistarhús með hljómburði í hæsta gæðaflokki og fyrsta flokks aðstöðu fyrir gesti og listamenn, ásamt fyrsta flokks ráðstefnuaðstöðu í ráðstefnumiðstöð." Þannig mæltist Ólafi B. Thors stjórnarformanni Austurhafnar ehf í upphafi blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í gær, þar sem kynnt var það ferli sem nú hefur leitt til þess að gengið verður til samninga við Portus-hópinn um byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels við Reykjavíkurhöfn. Reiknað er með að framkvæmdir geti hafist að ári, og að þeim ljúki haustið 2009.

Ólafur lýsti því að ákveðið hefði verið á sínum tíma að bygging og rekstur hússins yrðu einkaframkvæmd, og að jafnframt hefði verið afráðið að gera sérleyfissamning um verkið með aðferðum samningskaupa við að velja framkvæmdaraðila, og taldi þá aðferðafræði hafa gefist mjög vel. Þær aðferðir fólu í sér að eftir að tillögum var skilað inn, var farið yfir þær, þær ræddar og gagnrýndar og hópunum gefinn kostur á að betrumbæta, endurskoða og lagfæra með hliðsjón af þeim þörfum sem Austurhöfn taldi þurfa að uppfylla. Ólafur sagði samvinnu þá sem náðst hefði milli rekstrarmanna, arkitekta, framkvæmdamanna og hönnuða við það ferli, hafa leitt til betri heildarlausna en fengist hefðu með hefðbundnum aðferðum. "Þetta er ekki síst því að þakka, hversu gífurlega vinnu allir umsækjendur í ferlinu lögðu í það. Þeir lögðu allir ómetanlegan skerf til þessa verks, þótt einn standi að endingu uppi sem sigurvegari."

Reykjavíkurborg ákvað að binda ekki deiliskipulag byggingasvæðisins fyrr en ljóst yrði hvernig lokatillögur um byggingarnar litu út, til að gefa hönnuðum þeirra sem mest frjálsræði. Ólafur sagði að nú riði á að samþykkja deiliskipulag fyrir svæðið, með hliðsjón af verðlaunatillögunni, svo hefja mætti framkvæmdir hið fyrsta.

Ólafur lagði áherslu á að með tillögu Portus væri ekki um að ræða byggingu á húsi, heldur stórkostlega uppbyggingu hafnarsvæðisins, sem myndi gjörbreyta ásýnd miðborgarinnar.

Allt miðast við fyrsta flokks hljómburð

Aðaltónleikasalur mun rúma 1.800 áheyrendur, en tvískiptur ráðstefnusalur mun rúma 700 áheyrendur í bíóuppröðun eða 500 í skólastofuuppröðun. Í tengslum við ráðstefnusalinn verður sýningaaðstaða. Í kammermúsíksal, sem jafnframt verður æfingasalur Sinfóníuhljómsveitarinnar verður pláss fyrir 450 áheyrendur, en mörg minni fundaherbergi verða í húsinu. Tveimur stærstu fundaherbergjunum verður hægt að slá saman, þannig að úr verði einn salur fyrir kammermúsík eða einleikstónleika, sem rúmar 180 áheyrendur. Ólafur lagði áherslu á að hönnun þessa salar yrði miðuð við fyrsta flokks hljómburð, að tillögu hljómburðarsérfræðinga frá Artec fyrirtækinu, sem hefur verið Austurhöfn til ráðgjafar um hljómburð. Hótelið verður svipað að stærð og tónlistar- og ráðstefnuhúsið. Alls geta byggingarnar numið á milli 80 og 90 þúsund fermetrum.

Að meðtöldum kostnaði við lóðir og bílastæði hafði Austurhöfn, að sögn Ólafs, gert ráð fyrir að stofnkostnaður við tónlistar- og ráðstefnumiðstöð gæti orðið 8,5 milljarðar. Þær áætlanir voru þó gerðar áður en nokkrar teikningar lágu fyrir til grundvallar því mati, og voru einungis byggðar á forsögn um stærð. Þau tvö tilboð sem komust lengst; tilboð Portus, og tilboð Eignarhaldsfélagsins Fasteignar og Klasa gerðu ráð fyrir að stofnkostnaður yrði annars vegar 12 milljarðar og hins vegar um 9 milljarðar. Engu að síður byggðust þau bæði á því að árlegt framlag Austurhafnar yrði óbreytt, eða 600 milljónir á ári.

Hæsta einkunn í fimm flokkum af átta

Matsnefnd var skipuð til að meta tillögur, en hana skipuðu Stefán Baldursson, Kristrún Heimisdóttir og Orri Hauksson. Matsnefnd til aðstoðar voru hópar sérfræðinga og ráðgjafa.

Stefán Baldursson kynnti niðurstöðu matsnefndarinnar og í máli hans kom fram að mjótt hefði verið á munum milli lokatillagnanna, enda hefði valið staðið á milli tveggja glæsilegra lausna. Vinningstillaga Portus-hópsins hlaut hæstu einkunn í fimm af átta matsflokkum, þ.e. byggingarlist, lausn á rekstri bílastæða, fyrir viðskiptaáætlun, fyrir fjárhagslegan og stjórnunarlegan styrk og fyrir metnaðarfulla dagskrá og starfsemisáætlun. „Er það einróma álit matsnefndarinnar að vinningstillagan sé afar glæsileg í alla staði og að byggingin verði áhrifamikið kennileiti í ásýnd Reykjavíkur," sagði Stefán. Hann sagði Portus-hópinn öflugan og fjárhagslega sterkan; tillagan fæli í sér stjórnkerfi sem tryggði listrænan metnað og ágæta aðstöðu fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og væri því í fullu samræmi við öll menningarleg meginmarkmið verkefnisins.

Portus byggir fleiri hús á lóðinni

Í tillögu Portus-hópsins er tónlistar- og ráðstefnuhúsið staðsett austarlega á byggingarlóðinni, að hluta til á landfyllingu, sem gerð verður í Austurbugtinni, þar sem hafnarbakkinn verður færður fram. Hótelbyggingin verður á vesturhluta lóðarinnar. Tillagan felur einnig í sér uppbyggingu á nærliggjandi lóðum, allt frá Lækjartorgi. Þar verða íbúðarbyggingar, aðalstöðvar Landsbanka Íslands og húsnæði, sem fram kom í kynningu fulltrúa Portus-hópsins á tillögunni, að gæti hugsanlega orðið framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands. Þessar byggingar verða reistar af Portus-hópnum á eigin reikning, en hópurinn kaupir byggingarrétt á þeim lóðum. Alls nemur heildarbyggingamagnið sem tillagan nær til yfir 80 þúsund fermetrum.

Einkenni Tónlistar- og ráðstefnumiðstöðvarinnar verður án efa listræn hönnun Ólafs Elíassonar og glerhjúpurinn sem mun umlykja byggingarnar þrjár. Hann verður byggður úr sexstrendum sívalningum og þekur yfirborð bygginganna eins og renningur frá norðvestri til suðausturs, en gaflar verða annars að mestu leyti úr gleri og stáli.

Reykjatorg, sem staðsett er milli hótelsins og tónlistar- og ráðstefnuhússins mun einnig vekja athygli, en þar leika vatn og gufa aðalhlutverk í miklu spilverki.

Frá Lækjartorgi og að aðalinngangi hússins liggur ljósá, yfir bílageymslum neðanjarðar, göngustræti sem hleypir birtu að degi til niður í bílakjallarann, en rafljósi upp í borgarlandslagið að nóttu.

Portus lagði fram listræna stefnu með tillögu sinni, en listrænn ráðgjafi er Vladimir Ashkenazy. Lagðar voru fram hugmyndir um hvernig tónleikahaldi gæti orðið háttað í tónlistarhúsinu, en til frekari listrænnar ráðgjafar er umboðsmaður Ashkenazys, Jasper Parrott, sem rekur eina virtustu umboðsskrifstofu tónlistarmanna í heiminum, Harrisson-Parrott í London.

Í ávarpi sínu á blaðamannafundinum óskaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra öllum hlutaðeigandi til hamingju með daginn, og sagði að tónlistarhúsið yrði glæsileg höll tónlistarinnar, en yrði þó ávallt fyrst og fremst að vera hús fólksins.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, sagði þetta stóra og sögulega stund, og byggingarnar verða glæsilegt kennileiti í landslagi borgarinnar. „Miðborgin verður hjarta höfuðborgarinnar, miðstöð menningar og mennta, löggjafarvalds, stjórnsýslu, verslunar, dómstóla og þjónustu. Hún mun styrkjast og ásýndin verða glæstari."

Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is

Portus-hópurinn. Fremsta röð f.v.: Mette Kynne Frandsen, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, …
Portus-hópurinn. Fremsta röð f.v.: Mette Kynne Frandsen, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Björg ólfur Guðmundsson og Steinunn V. Óskarsdóttir. Í röðinni fyrir aftan, f.v.: Sigurður Einarsson, Ingela Larson, Sigfús Jónsson, Tryggvi Tryggvason og Helen Ólafsdóttir. Í öftustu röð, f.v.: Þór hallur Vilhjálmsson, Eyjólfur Á. Rafnsson, Stefán Þórarinsson, Ósbjörn Jacobsen, Gunnlaugur Kristjánsson, Peer Teglgaard Jeppesen, Kim Smedegaard Andersen og Úlfar Örn Friðriksson. mbl.is/Árni Sæberg
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið séð úr lofti, frá Lækjartorgi. Fremst til …
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið séð úr lofti, frá Lækjartorgi. Fremst til hægri verða nýjar höfuðstöðvar Landsbanka Íslands og þar fyrir aftan bygging, sem hugsanlega mun hýsa Listaháskóla Íslands. Vinstra megin fremst er gert ráð fyrir íbúðabyggingu, en að baki henni er hótelbyggingin. Milli bygginganna sést í upplýst göngustrætið sem liggur frá Lækjartorgi að fordyri Tónlistarhússins. Milli hótelsins og Tónlistarhússins verður Reykjatorg, en undir því verður gengt milli bygginganna.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert